|
Fimmtudagur, 02 September 2010 |
|
Seyðfirðingar eru misánægðir með sumarið, sem er senn að líða undir lok, en allir hljóta þó að gleðjast saman yfir góða veðrinu sem við njótum þessa dagana. Ómar Bogason tók þessa frábæru mynd í gær, miðvikudaginn 1. september, klukkan 18.30. Myndin sýnir skemmtilegan vinkil á því hvernig þokan læðir sér inn með fram Bjólfinum þegar sólin er að hverfa á bak við fjöllin. Þarna sést einnig glitta í Norrænu, rétt áður en hún sigldi af stað. Í gærkvöldi, þegar allur bærinn var rafmagnslaus, lá þokan mjög neðarlega og huldi stóran hluta bæjarins. Þá var útsýnið frá efstu götu hlíðar var mjög svo sérkennilegt þar sem ekki sást í miðbæinn, en aftur á móti sáust fjallatopparnir og himininn afar vel.
|
|
|
Fimmtudagur, 02 September 2010 |
|
Þann 1. september hófst vetraropnun íþróttahússins. Opið verður sem hér segir; mánudaga til föstudaga frá klukkan 8.00 – 19.00 og laugardaga frá klukkan 11.00 – 15.00. Nánari upplýsingar um íþróttahúsið má finna hér.
|
|
|
Mánudagur, 30 Ágúst 2010 |
|
Í dag, miðvikudaginn 1. september hefst vetraropnun í Sundhöll Seyðisfjarðar. Hún er sem hér segir og gildir til 31. maí 2011. Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga verður opið frá klukkan 06.30 - 09.00 og 17.00 - 21.00. Þriðjudaga og fimmtudaga verður lokað og á laugardögum verður opið frá klukkan 13-16. Það verður hins vegar opið alla þriðjudaga út september frá klukkan 17-20.30. Sjá nánari upplýsingar um sundlaugina hér.
|
|
|
Mánudagur, 30 Ágúst 2010 |
|
Í dag, 1. september, tekur gildi hefðbundinn vetraropnunartími bókasafnsins. Það verður opið sem hér segir; mánudagar frá klukkan 15-19 og þriðjudagar til föstudagar frá klukkan 15-18. Takið ykkur tíma til að líta við og fletta gegnum tímarit og bækur yfir kaffibolla. Sjá nánar um bókasafnið hér.
Allir velkomnir, Kári og Solla.
|
|
|
Mánudagur, 30 Ágúst 2010 |
|
Miðvikudaginn 1. september næst komandi mun mömmuklúbburinn aftur fara að hittast. Allar mæður með ung börn eru velkomnar, bumbuberar og mæður með börn sem ekki eru í dagvistun. Mömmuklúbburinn hittist í Öldutúni frá klukkan 10-12 alla miðvikudaga og hefur það notalegt saman.
|
|
|
Mánudagur, 30 Ágúst 2010 |
|
Miðvikudaginn 1. september 2010 heldur bæjarstjórn Seyðisfjarðar almennan fund í íþróttamiðstöðinni (fundarsal 3. hæð) og hefst fundurinn klukkan 16.00. Dagskrá: 1. Fundargerð bæjarráðs nr. 2143. 2. Fundargerð bæjarráðs nr. 2144. 3. Fundargerð bæjarráðs nr. 2145. 4. Fundargerð bæjarráðs nr. 2146. 5. Fundargerð fræðslunefndar dagsett 16/8 2010. 6. Fundargerð umhvefisnefndar dagsett 15/7 2010. 7. Fundargerð íþrótta- og æskulýðsnefndar dagsett 15/7 2010.
Seyðisfirði 30. ágúst 2010.
- Bæjarstjóri -
|
|
|
|